Virkur opnar nýja leið að félagsstarfi

Félagslegt starf fyrir þig og þína

An elderly man and woman sitting on a gray couch, looking at a laptop. The man has white hair, glasses, and is wearing a checkered shirt, while the woman has short strawberry blonde hair and is in a light pink sweater. The room has colorful geometric patterned walls, shelves with plants and decorations, and a coffee table with a pot of succulents, books, and a remote control.

Virkur er samfélagslegt nýsköpunarverkefni sem byggir á stafrænum lausnum til að auka virkni, þátttöku og tengsl einstaklinga sem standa höllum fæti gagnvart félagslegri einangrun, svo sem eldri borgara.

Verkefnið miðar að því að skapa einfaldan og aðgengilegan vettvang sem tengir notendur og aðstandendur við viðburði, þjónustu og samfélag í nærumhverfi sínu og styrkir þannig lífsgæði, sjálfstæði og samfélagslega þátttöku.

Tengjum fólk við samfélagið

Félagsleg einangrun

Margir einstaklingar, sérstaklega eldri borgarar og aðrir sem standa höllum fæti, missa tengsl við samfélagið vegna skorts á upplýsingum, aðgengi eða stuðningi.

Upplýsingar óaðgengilegar

Viðburðir, félagsstarf og þjónusta eru oft auglýst á mörgum stöðum, sem gerir notendum og aðstandendum erfitt fyrir að fá yfirsýn.

Skortur á yfirsýn og samskipti

Aðstandendur vilja styðja betur við sína nánustu en hafa oft takmarkaða yfirsýn yfir hvað er í boði og hvernig hægt er að virkja fólk.

Reynist of mikil fyrirhöfn

Skráning, samskipti og aðgengi að upplýsingum geta verið flókin, sérstaklega fyrir fólk sem er ekki vant stafrænum lausnum.

Meiri þátttaka, betri lífsgæði

Lausn Virks felst í því að skapa einfaldan og aðgengilegan stafrænan vettvang sem auðveldar fólki að finna viðburði, félagsstarf og þjónustu í nærumhverfi sínu, á sama tíma og upplýsingar frá sveitarfélögum, félagasamtökum, opinberum aðilum og fyrirtækjum eru sameinaðar á einum stað.

Þannig fá notendur betri yfirsýn yfir það sem er í boði, aðstandendur fá einfalt tól til að styðja við þátttöku sinna nánustu og skráning, upplýsingamiðlun og samskipti verða skýrari, aðgengilegri og notendavænni.

Ný leið til að draga úr félagslegri einangrun